Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs
Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs
Skólinn okkar heitir Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs og hefur verið starfræktur í rúm 20 ár. Kennt er í Lundi og
á Kópaskeri í húsnæði grunnskólans. Í vetur er haft nokkuð samstarf við Tónlistarskóla Húsavíkur, sem mun
aukast með tíð og tíma.
Í vetur eru kenndar rúmar 30 klukkustundir á viku, og innritaðir 30 nemendur, 3 fullorðnir og 27 á grunnskólaaldri. Þeim er kennt á píanó, blokkflautu, altflautu, tenorflautu, þverflautu, klarinettu, saxófón, trompet, harmoniku, gítar (rafgítar og klassískan), bassa og slagverk. Söngnemendur eru einnig við skólann. Sömuleiðis eru starfræktar hljómsveitir við skólann, og grunnskólinn okkar er með hljómsveitarval fyrir elstu nemendur grunnskólans, sem kennari tónlistarskólans annast. Kórstarf hefur ekki tekist að hafa, þrátt fyrir áhuga bæði okkar og tilvonandi söngvara.

Starf tónlistarskólans fer formlega í gang í byrjun september. Um áramót eru oft gerðar breytingar á starfi skólans og nemendur
hætta og nýir byrja. Farið er eftir biðlista sem skólastjóri sér um.