Brúum bilið.
Til þess að samfella verði í námi barns, er talið æskilegt að brúa það bil sem er á
milli leikskólans annars vegar og grunnskólans hinsvegar. Gott getur verið að líta á árin frá 4 – 8 ára sem eina heild. Samhengi
í hugmyndafræði, kennslufræði og skipulagi þessara skólastiga væri einnig góður kostur til þess að búa til samfellu í
skólastarfi þessa tveggja stofnana.
Hér verður nú lítillega sagt frá þá reynslu sem áunnist hefur í
Öxarfjarðarskóla í þessu máli.
Árið 1992 flutti leikskólinn inn í húsnæði Grunnskólans á Kópaskeri sem þá
hét, og hefur verið þar síðan. Sama haust hófst samstarf milli leikskólans og grunnskólans um verkefnið „Brúum bilið“.
Markmiðið var að skapa samfellu í starfi skólanna, að börnunum liði vel og væru örugg þegar þau flyttust á milli
skólastiga. Leikskólabörnin kynnast samnemendum og væntanlegum kennara og koma þar af leiðandi öruggari í skólann árið eftir. Helstu
markmið í upphafi voru og eru enn:
-
Að mynda tengsl og skapa samfellu í starfi leik- og grunnskóla
-
Að efla samkennd, skapa hóp
-
Að örva málþroska, efla hlustun og athygli
-
Að auka hreyfifærni bæði fín- og grófhreyfinga
Síðustu árin hefur einnig samstarf verið milli leikskólans og grunnskólans í Lundardeild.
Kópaskersdeild og Lundardeild voru sameinaðar og heita nú Öxarfjarðarskóli, sem kunnugt er.
Samstarfið hefur farið fram sem hér segir: Elstu börn leikskólans fara einu sinni í viku allt
skólaárið inn í grunnskólann og taka þátt í sameiginlegri kennslulotu með 1. bekk grunnskólans, e.t.v. 2. og 3. bekkur með
(samkennsla árganga). Kennslulotur hafa verið mislangar milli ára, frá 40 mínútum til 80 mínútna á viku. Starfsmaður frá
leikskóla og starfsmaður frá grunnskóla kenna börnunum saman í tímanum. Kennslulotunni hefur t.d. verið skipt í tvennt, hver kennari
undirbýr hvorn helming saman og /eða sinn í hvoru lagi. Nokkrir aðilar hafa starfað að samvinnuverkefninu í gegnum árin. Hefur hver verið með
sínar aðaláherslur, t.d. stafainnlögn, ritað mál, málörvun, náttúruna, hreyfingu, slökun, tónlist, tónmennt og
leikræna tjáningu.
Þetta samstarf hefur verið tiltölulega auðvelt í framkvæmd vegna samnýtingar á húsnæði,
húsbúnaði og öllum kennslugögnum. Leikskólalóðin er hluti af útisvæði grunnskólanema, þess vegna blandast leikur
þessara barna saman í frímínútum.
Verkefni „Brúum bilið“ hefur staðið óslitið í skólanum okkar síðan árið
1992. Það er byggt upp á velvild, áhuga og samstarfsvilja milli kennara beggja stofnanna og jákvæðni foreldra, en hefur ekki fengið styrki frá
viðeigandi sjóðum sem úthluta penigum til þróunnarverkefna.
Samvinna er mikilvæg milli starfsfólk leik- og grunnskólans og foreldra. Við höfum einnig notið góðs af
sérfræðiþekkingu fagfólks Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga. Gott upplýsingastreymi og traust milli þessara aðilla
gerir starfið kleyft. Einnig að smíða sér stakk eftir vexti, að taka frekar stutt skref í einu en ekki stór stökk til að byrja með, og koma
á reglubundinni samkennslu og samvinnu. Markmið verða alltaf að vera fyrir hendi og sífellt endurmat á starfinu. Gott er að skrá það sem gert er
í tímunum, hvað var vel gert og hvað mætti betur fara. Mikilvægt að börnin finni til öryggis og að þau þekki aftur það starf
sem fer fram í skólanum þegar þau koma síðan þangað sem nemendur.