Árshátí­ð Öxarfjarðarskóla sunnudaginn 22. mars kl. 14:00 með söngleikinn Bugsy Malone

Sunnudaginn 22. mars, kl 14:00, í Skúlagarði, stígur stoltur hópur nemenda á svið með eitt stórt sameiginlegt verkefni, Bugsy Malone eftir Alan Parker og er það Hrund Ásgeirsdóttir sem leikstýrir verkinu. Allir nemendur grunnskólans taka þátt í þessu verkefni ásamt elstu nemendum leikskólans. Í hléi verður foreldrafélagið með kaffihlaðborð og kostar það kr. 1.000. Við hvetjum fólk til að koma með börnin á þessa sýningu sem er á góðum tíma fyrir barnafjölskyldur. Inn á sýninguna kostar kr. 2.000 fyrir fullorðna, kr. 1.000 fyrir börn á grunnskólaaldri. Ókeypis verður fyrir börn á leikskólaaldri.