Árstíðarþema í yngri deild

Undanfarnar vikur hafa nemendur yngri deildar verið að vinna verkefni tengd árstíðum. Haustið hefur skipað stærstan sess þar sem við höfum verið að skoða hvað einkennir það, lært ljóð, kannað veður, verið með veðurkort og nýtt okkur litbrigði náttúrunnar.