Byrjun skólastarfs

Skólastarfið hefur farið vel af stað og koma nemendur vel stemmdir til leiks. Í dag var fyrsti dagur sundúthalds þar sem allur skólinn kom saman í Lundi. Til stóð að fara með nemendur í náttúruskoðun og þematengd verkefni í þjóðgarðinn í þessari viku en vegna rigningarspár var ákveðið að fresta ferðunum fram yfir helgi og sjá hvort veðurguðirnir verði okkur hliðhollari þá.