Foreldrasamtöl nálgast

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Nú standa fyrir dyrum foreldraviðtöl. Dagana 15., 16. Og 17. mars er ráðgert að hafa foreldraviðtöl. Nánari upplýsingar um tíma og dag koma frá umsjónarkennara viðkomandi barns.

Báðar leikskóladeildirnar, í Lundi og á Kópaskeri, verða opnar í sumar. Sumarlokun verður, hjá báðum deildum, frá og með 11. Júlí til 15. ágúst. Starfsfólk við leikskóladeild Lundar í sumar verða þær Silja Rún, Lára Björk og Ágústa. Starfsfólk á Kópaskeri verða þær Aðalbjörg og Ásta.

Í lok þessarar viku fá nemendur nýtt valblað með sér heim. Árshátíð Öxarfjarðarskóla nálgast nú óðfluga. Ákveðið hefur verið að nota lengda viðveru að miklu leyti í leikæfingar og undirbúning og litast valblað næsta tímabils af þeirri ákvörðun.

Kær kveðja,
Guðrún S. K.