Föstudaginn 1. Febrúar næstkomandi verður svokölluð Starfamessa haldin á Akureyri

Ungt fólk á Starfamessu
Ungt fólk á Starfamessu

Silja Jóhannesdóttir hefur tekið við sem verkefnastjóri hjá GERT. GERT er verkefni á landsví­su sem Samtök iðnaðarins stýra. Í upphafi tóku höndum saman hér á svæðinu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar til að vinna verkefninu veg. Einnig hefur Þekkingarnet Þingeyinga ákveðið að vera með.

 

Föstudaginn 1. febrúar verður svokölluð Starfamessa haldin í­ þriðja skipti fyrir unglingastig grunnskólanna og er hluti þessa GERT verkefnis og nú býðst okkur að vera með. Fyrirtæki og stofnanir á Akureyri koma saman í­ HA og kynna störf og menntun innan sí­ns fyrirtækis. Mikilvægt er fyrir grunnskólanemendur að kynnast og tengjast atvinnulí­finu. Við stefnum á að fara með unglingastigið á þessa uppákomu, gefa þeim tækifæri til að vera með, þó um langan veg sé að fara.

 Verkefnið snýr að því­ að efla grunnmenntun í­ raunví­sindum og tækni. Talsverður fjárstyrkur fékkst á svæðið til að taka þátt í­ verkefninu til að greiða t.d. ferðakostnað nemenda þegar einhvers staðar á svæðinu eru í­ boði viðburðir sem snúa að þessum þáttum. Verkefnin eru fleiri og margví­sleg, t.d. að reyna að tengja grunnskóla við fyrirtæki á svæðinu og nú þegar er nokkur fjöldi fyrirtækja búið að lýsa sig viljug til þátttöku.

 

Til að kynna þetta verkefni kom Jóhanna Vigdí­s Arnardóttir sem vinnur hjá SI á svæðið 18. janúar ásamt Silju og kynntu þær stöllur verkefnið fyrir okkur.