Gjöf frá Norðurþingi

Í gær kom Jón Höskuldsson fræðslufulltrúi  færandi hendi og færði skólanum gjöf frá Norðurþingi fyrir framúrskarandi árangur í­ grunnskólakeppni Samróms. Í pakkanum er Cricut maker sem er alhliða föndurskeri og getur skorið út pappí­r, plast og efni. Frábært tæki sem býður upp á mikla möguleika og mun nýtast vel í­ skapandi kennslu.  Við erum þakklát fyrir að eftir okkur sé tekið og virkilega þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf!