Leiklist sem kennsluaðferð og verkefni sem Árshátí­ð skilar miklu, og samþættir margt

Leiklist er ein af mörgum kennsluaðferðum
Í nýlegu kynningarriti Menntamálaráðuneytis "Enn betri skóli" sem nýlega var dreift til almennings er lögð áhersla á listir; myndmennt, hannyrðir og tónmennt. Einnig er gert ráð fyrir, samkvæmt markmiðum, að nemendur tileinki sér grunntækni leiklistar og dans. Á þeim tíma sem sem fer í vinnu og æfingar fyrir metnaðarfulla sýningu, náum við að vinna að mörgum markmiðum Aðalnámskrár.
Leiklist er kennsluaðferð. Hún hjálpar nemendum til þess að setja sig í spor annarra, eflir sjálfstraust og sjálfstæðar ákvarðanatökur. Leiklist kallar á samstarf, nemendur vinna saman í hópum og því þjálfar hún samskiptahæfni nemenda og eykur með þeim samkennd.
Í leiklist eru allir jafnir og rannsóknir benda til að í verkefni sem þessu auki nemendur orðaforða og aukinn orðaforði leiðir til aukins skilnings á námsefni.

Þegar foreldrar og kennarar eru spurðir um hvaða færni þeir telja mikilvægast að nemendur tileinki sér og fari með upp úr grunnskólanum? Þá eru það eftirfarandi gildi sem tróna yfirleitt efst: Sjálfstraust og félagsfærni. Fátt þjálfar betur þessa þætti en leiklist. Farsæl samskipti og örugg framkoma eru lykilatriði í öllu mannlegu atferli og gildir þá einu hvort um er að ræða börn eða fullorðið fólk. Margir kvíða því að þurfa að koma fram fyrir aðra og eiga erfitt með að tjá skoðanir sínar enda er leikni í slíkri framsögn ekki sjálfgefin, heldur krefst bæði mikillar og markvissrar þjálfunar. Það er því mikilvægt styrkja þessa þætti hjá nemendum og gefa þeim tækifæri til að stíga á svið og tjá sig með leiklist, upplestri eða söng.
Það gengur á ýmsu meðan á æfingum stendur og það reynir á, en að sýningu lokinni eru nemendur yfirleitt stoltir og reynslunni ríkari. Sterk sjálfsmynd og góð félagsfærni stuðlar að bættu skólastarfi, námsárangri og betri líðan barna/nemenda. Það er fleira nám en bóknám.

Við erum í samstarfi við Tónlistarskóla Húsavíkur og höfum notið liðsinnis Ástu Magnúsdóttur og Reynis Gunnarssonar við undirbúning þessa verks. Þá höfum við enn á ný fengið að njóta krafta meðlima hljómsveitarinnar Legó, þeirra Sigga, Haffa og Tryggva, sem spila undir á sýningunni ásamt, Önku og þeim Ástu og Reyni.

Heilmikil vinna liggur á bak við verk sem þetta og það eru flott börn og ungmenni sem þarna stíga á svið. Ég vil þakka öllum sem hafa komið að þessari vinnu á einn eða annan hátt; m.a. nemendum, starfsfólki, foreldrum og velunnurum. Það sýndi sig svo sannarlega að við eigum hæfileikafólk á hverju strái í undirbúningi verksins, og er það ekkert sjálfgefið. 

Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir
skólastjóri, Öxarfjarðarskóla.