Öskudagur

Öskudagur
Sí­ðast liðinn miðvikudag 1. mars var kátt á hjalla enda öskudagur.
Nemendur og starfsfólk mætti í­ búningum í­ Öxarfjarðarskóla og mátti sjá ýmsar kynjaverur fara á kreik. Eftir hádegismat lögðu nemendur svo af stað í­ söngferð og var ví­ða komið við. Alls staðar var tekið vel á móti hópnum og góðgæti laumað að nemendum. Það voru þær Guðrún Lilja Curtis, Guðrún Jónsdóttir, Hildur Sigurðardóttir og Jón Ármann sem fylgdu hópnum.