Stóra upplestrarkeppnin 2019

Ungmennin tí­u ásamt í­slenskukennurunum fjórum
Ungmennin tí­u ásamt í­slenskukennurunum fjórum

Lokahátí­ð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á föstudaginn var, 8. mars, Safnahúsinu á Húsaví­k. Tí­u ungmenni úr 7. bekk úr Borgarhólsskóla, Þingeyjarskóla, Grunnskólanum á Þórshöfn og Öxarfjarðarskóla komu fram og fluttu ljóð og sögubrot fyrir gesti.

Í fyrstu umferð voru lesnar svipmyndir úr skáldsögunni Þí­n eigin þjóðsaga eftir í†var Þór Benediktsson.Â Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Önnu Sigrúnu Snorradóttir. En í­ þriðju og sí­ðustu umferð fengu lesarar val um hvaða ljóð þeir vildu flytja. Öll þessi ungmenni stóðu sig með miklum sóma. Okkar fulltrúi, Ingvar Örn Tryggvason, flutti ljóðið Heimaslóð eftir langafa sinn Tryggva Ísaksson. Ingvar Örn stóð sig með sóma og flutti sitt mál vel. Nemendur Tónlistarskóla Húsaví­kur og Þingeyjarskóla voru með tónlistaratriði.Â Í fyrsta sæti var Katla Marí­n Þorkelsdóttir úr Borgarhólsskóla, í­ öðru sæti var Arndí­s Inga Árnadóttir úr Þingeyjarskóla og þriðja sæti skipaði Indriði Ketilsson úr Þingeyjarskóla. Myndin er frá Borgarhólsskóla.