Aukasýning
Okkur langar mikið til að hafa aukasýningu og stefnum á miðvikudaginn 15.apríl í Skúlagarði kl. 19.30. Ég hef fengið grænt
ljós frá Kidda og hljómsveitinni. Þá myndum við vera í Skúlagarði allan miðvikudaginn á æfingum og sýna
síðan um kvöldið. Vonandi geta börnin ykkar tekið þátt í þessu en látið mig vita sem fyrst ef þið sjáið meinbugi
á því. Við höfum ákveðið að fólk þurfi að panta miða fyrirfram til að vita hversu marga við fáum og viljum helst
ekki sýna fyrir færri en 50 manns. Það væri ekki úr vegi að börnin litu endrum og sinnum í handritin sín (þau sem eru með
stærstu hlutverkin) og rifja lögin upp :-)
Auglýsingar og nánari upplýsingar koma síðar þegar allt er á götu gert. Með kveðju frá Hrund.