Til foreldra í­ Norðurþingi og nágrenni. Hverni sköpum við börnunum okkar bestu þroskaskilyrði fyrir mál og tal.

beðin um að koma þessum upplýsingum á framfæri. Kv, GSK. 

Spennandi fundur fyrir foreldra barna í­ leikskóla og 1- 4. bekk grunnskóla
Fundurinn verður haldinn í­ Samkomusal Borgarhólsskóla mánudaginn 19. september kl. 17.00

Bryndí­s Guðmundsdóttir talmeinafræðingur fræðir um málþroska og framburð og mikilvægi örvunar á þessu sviði.
Hvernig gefa foreldrar börnum forskot á málþroska og tjáningu sem sí­ðar leggur grunn að lestrarfærni og námi?
Sérstaklega verður kynnt aðferðafræði og rannsóknir er tengjast „Lærum og leikum með hljóðin“.

Dæmi sýnd um notkun smáforrita í­ kennslu og leik heima fyrir.
Efnið hentar mjög vel foreldrum barna í­ leikskóla og yngri aldurshópum í­ skóla. Sérstök tilboð verða á efni Lærum og leikum með hljóðin, fyrir áhugasama. Sjá nánar á laerumogleikum.is
Hvernig sköpum við börnum okkar bestu þroskaskilyrði fyrir mál og tal?
Skólaþjónusta Norðurþings - Aðgangur er ókeypis.