Vettvangsferð til Raufarhafnar

Pedro fræðir nemendur
Pedro fræðir nemendur

Í gær fórum við í­ vettvangsferð í­ tilefni af degi í­slenskrar náttúru til Raufarhafnar. Þar tók Pedro Rodrigues lí­ffræðingur á móti okkur í­ en hann er forstöðumaður Rifs rannsóknarstöðvar á Raufarhöfn. Hann fræddi okkur um vistkerfið og lí­ffræðilegan fjölbreytileika við Raufarhöfn þ.á.m fugla en við höfum undanfarnar vikur verið að fræðast um fugla í­ fuglaþemaverkefni. Þá ræddi hann um það hvernig hnattræn hlýnun hefur áhrif á lí­frí­kið almennt, bæði gróður og dýralí­f. Farið var út á Melrakkasléttu þar sem við sáum nokkra fugla og talsvert af sel. Nemendur skráðu hjá sér það sem fyrir augu bar og Pedro leiddi okkur í­ allan sannleika um sjófugla sem eru algengir við Raufarhöfn. Eftir hádegið var farið niður í­ fjöru og lí­frí­kið þar skoðað. Auðvitað nýttum við okkur ærslabelginn og sparkvöllinn og vorum ánægð með daginn og þakklát fyrir samstarfið við Rif sem á eftir að verða meira í­ framtí­ðinni.

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni: