Í dag tekur Öxarfjarðarskóli þátt í Skólahreysti í fyrsta sinn. Nemendur hafa verið í þjálfun hjá Salbjörgu í vali hjá Íþróttafélaginu Þingeyingi og mikil stemning innan hópsins sem lagði af stað um hádegið til Akureyrar að keppa. Við munum fylgjast spennt með beinni útsendingu á RÚV kl. 17:00!
Innritun barna sem hefja skólagöngu í grunnskólum Norðurþings næstkomandi haust er hafin. Innritun fer fram í gegnum vefgáttina Ísland.is. Foreldrar barna fædd árið 2020 eru hvött til að innrita börn sín sem fyrst.
Pangea stærðfræðikeppni er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.
Í dag var haldin skákkeppni sem er lokahnykkurinn á námskeiði vetrarins sem var í höndum Skákfélagsins Goðans. Keppnin fór fram matsal skólans og tóku allir nemendur þátt.
Verðlaunaafhending fór fram utandyra í sól og blíðu og voru veitt viðurkenningarskjöl í eldri og yngri flokkum.
Úrslitin urðu eftirfarandi: