Skákfélagið Goðinn undir leiðsögn Hermanns og Hilmars hafa verið með skákkennslu í Öxarfjarðarskóla í vetur fyrir alla aldurshópa. Þeir hlutu til þess styrk frá Norðurþingi og hefur kennslan farið fram mánaðarlega síðan í september en nú fer að líða að lokum. Í gær komu þeir færandi hendi og gáfu skólanum 10 skáksett sem við erum afskaplega þakklát fyrir. Hér má sjá nokkra af skákmönnum framtíðarinnar sem hafa verið áhugasamir í vetur.
Nýendurskoðuð Mennta- og læsisstefna Norðurþings 2026-2031 hefur verið samþykkt í sveitarstjórn Norðurþings sem byggir á skólastefnu frá 2020. Samkvæmt lögum um leik- og grunnskóla skal hvert sveitarfélag setja sér stefnu um skólahald og nær þessi nýja menntastefna yfir alla starfsemi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla Norðurþings.
Búið er að kynna stefnuna fyrir starfsfólki leik- og grunnskóla og eru foreldrar hvattir til að kynna sér hana hér:
https://www.nordurthing.is/static/files/Menntun/mentastefna-nordurthings.pdf
Öxarfjarðarskóli er þátttakandi í verkefni sem kallast ÓLD SKÚL og er á vegum Lókal performing arts sem er í eigu Ragnheiðar Skúladóttur og Bjarna Jónssonar. Þau sóttu um styrk til Öxarfjarðar í sókn fyrir verkefnið sem snýr að því að þróa listamannadvöl og námskeiðahald tengdu listum, sögu og náttúru, í samvinnu og samstarfi við hagsmunaaðila í Öxarfirði, þátttakendum að kostnaðarlausu. Við njótum meðal annars góðs af því hér í Öxarfjarðarskóla með umræddu verkefni í samstarfi við Benna Hemm Hemm tónlistarmann sem er nú búinn að vera í vinnu með unglingadeildinni í tvo daga.
Yngsta stig Öxarfjarðarskóla hefur undanfarnar vikur verið að vinna í þema sem nefnist “Samfélagið í nærmynd”. Þar er aðaláherslan á að nemendur kynnist sinni heimabyggð og þekki sögu og einkenni hennar. Það er ýmislegt sem nemendur hafa fengist við, t.d. semja spurningar fyrir góða gesti og spyrja þá spjörunum úr, sett saman nafnlausa könnun um heimilisverk, farið í vettvangsferð um samfélagið, kortlagt fyrirtæki, sveitabæi og íbúðarhús, spáð í grunnþjónustu, velt fyrir sér jafnrétti, kynjahlutverkum og margt fleira. Við viljum þakka fyrir frábærar móttökur í fyrirtækjunum sem heimsótt voru sem og öllum þeim sem lögðu okkur lið í þessu verkefni.