Leikskóladeildin

Leikskóladeildin Lundarkot er í sama húsi og grunnskólinn. Skólinn er staðsettu í kjarri vöxnu landi. Umhverfið býður upp á fjölbreytilegar útivistarferðir allt árið um kring. Nýtur leikskólinn mjög návistar við allt starf grunnskólans og er samnýting t.d á matsal, eldhúsi og íþróttasal. 

Saga leikskólanna

Leikskólinn Krílakot á Kópaskeri var stofnaður árið 1985. Í fyrstu var hann rekinn af foreldrum en um 1990 tók sveitarfélagið við rekstri hans. Leikskólinn í Lundi var stofnaður 1993. Deildirnar voru sameinaður undir eina stjórn árið 2003. Engin starfsemi hefur verið undanfarin ár á Kópaskeri.
Leikskólinn Lundarkot er hluti af Öxarfjarðarskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli  og skiptist í tvær deildir; Hálsakot (1-3ja ára börn) og Vinakot (4-5 ára börn).

Deildarstjóri Lundarkots er Hildur Óladóttir

Starfsreglur leikskólanna í Norðurþingi

Hér má sjá deildarnámskrá leikskóladeildarinnar í Lundi

Gjaldskrá leikskólans