Öxarfjarðarskóla barst kærkomin gjöf frá Kvenfélagi Keldhverfinga, nýjar vel valdar bækur á öll stig. Það er mikilvægt að endurnýja inn í bókakostinn en ekki alltaf mikið svigrúm fyrir skólann að gera það og við þökkum Kvenfélagi Keldhverfinga kærlega fyrir.
Kvenfélögin okkar þrjú hér í Öxarfirðihafa lagt sig fram um að bæta búnað skólans og er það þeim að þakka að nú er kominn skjávarpi í stofur allra stiga grunnskóladeildar. Sá síðasti var nýlega settur upp og mikil ánægja með það. Þetta auðveldar okkur að nýta stafrænt námsefni fyrir nemendur.