- Fréttir
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Hafa samband
- Skólinn
- Skólinn
- Mat á skólastarfi
- Foreldrafélag
- Skólaráð
- Skólaheilsugæsla
- Aðgerðaráætlanir
- Hagnýtar upplýsingar
- Leikskóladeildin
- Nemendur
Í dag 16. september er dagur íslenskrar náttúru og af því tilefni var farið í vettvangsferð í Þjóðgarðinn til að fræðast og upplifa.
Áður en ferðin var farin fengum við heimsókn frá landvörðum sem komu til okkar í skólann í gær til að undirbúa vettvangsferðina og svöruðu m.a. spurningum nemenda sem vörðuðu störf landvarða o.fl.
Þegar við mættum í Gljúfrastofu í morgun, var vel tekið á móti nemendahópnum og honum skipt upp skv deildum. Síðan var farið í stöðvavinnu innanhúss og allir hópar fengu að fara á hverja stöð sem í boði var; merkja örnefni á kort, búa til sveppi úr pappír og fræðast um það hvernig Ásbyrgi varð til. Eftir nestispásu í hádeginu var annars vegar gengið inn í botn undir leiðsögn og fróðleik af hálfu landvarða með mið- og unglingadeild sem könnuðu það sem á vegi þeirra varð, t.d. sveppi og tré. Nemendur fengu blöð með mismunandi sveppum og plöntum og áttu að athuga hvort þau sæju það í umhverfinu.
Hins vegar rannsóknarleiðangur upp í Ás með yngri deild þar sem þau fengu stækkunargler á miðri leið og skoðuðu gróður og tóku úr fiðrildagildrunni sem þar er staðsett. Sem betur fer viðraði bara nokkuð vel þrátt fyrir svolitla úrkomu sem skemmdi ekkert fyrir - í það minnsta komu glaðir nemendur til baka eftir vel heppnaðan dag.
Við viljum þakka starfsfólki þjóðgarðsins fyrir samstarfið, frábærar móttökur og vel skipulagða fræðslu sem var í höndum þeirra Maríu, Jónu, Dagnýjar, Indriða og Eysteins. Þau lögðu sig fram um að gera upplifunina sem besta fyrir okkur.


















