Í gær minntumst við Jónasar Hallgrímssonar skálds og náttúrufræðings sem fæddist einmitt þann 16. nóvember 1806 og sá dagur hefur verið valinn sem Dagur íslenskrar tungu haldinn ár hvert í 30 ár. Nemendur söfnuðust saman í gryfju og sungu "Á íslensku má alltaf finna svar" og síðan var ákveðið að halda það út einn dag að nota ekki enskuslettur sem reyndist ungum sem öldnum misauðvelt! Seigla var síðan valið orð dagsins.