Félagslegir töfrar

Dr. Viðar Halldórsson hélt fyrirlestur fyrir mið- og unglingastig í dag sem bar yfirskriftina "Félagslegir töfrar". Fyrirlesturinn fjallaði um hvernig félagslegir töfrar myndast í samskiptum fólks og stuðla að vellíðan og árangri einstaklinga og hópa.  Góðar umræður spunnust og að lokum færði Viðar skólanum bók að gjöf - Sjáum samfélagið.
Heimsóknin var í boði HSÞ, Kvenfélagasambands Suður Þingeyjarsýslu og Búnaðarsambands Suður Þingeyjarsýslu. 

Og hann gerðist töframaður og "töfraði kanínu" upp úr hattinum sem vakti kátínu: