Fjórir nemendur úr Öxarfjarðarskóla áfram í Pangea

Pangea stærðfræðikeppni er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.
Keppnin er haldin í yfir 20 löndum í Evrópu. Á Íslandi var keppnin var fyrst haldin vorið 2016 og þá tóku yfir 1000 nemendur þátt úr rúmlega 40 grunnskólum viðsvegar um landið.
Í ár voru 4694 keppendur skráðir úr 62 skólum á landinu; 2432 úr 8. bekk og 2262 úr 9.bekk. Í 8.bekk þurfti að minnsta kosti 27 stig í 2. Umferð til þess að komast í úrslitin og í 9.bekk að minnsta kosti 30 stig. Alls voru 97 nemendum boðin þátttaka í úrslitakeppninni í ár, þar af 52 úr 8. bekk og 45 úr 9.bekk.
Alls voru það 9 nemendur sem tóku þátt í keppninni frá Öxarfjarðarskóla og 4 þeirra komust áfram.
Úr 8.bekk voru það Jóhann Darri sem lenti í 15. sæti og Laufey Þóra sem hafnaði í 23.sæti og Dagný Lind í 38. sæti. Úr 9.bekk hafnaði Sóley Marie í 20. sæti.
Þess má geta að hlutfallstíðni þátttöku Öxarfjarðarskóla er 44% á móti 2% á landsvísu. Við höfum átt fulltrúa síðastliðin ár í keppninni sem hafa öll staðið sig með miklum sóma og erum við afar stolt af góðum árangri nemenda okkar.