Annað árið í röð erum við stolt af því að eiga nemanda sem tók þátt í smásagnasamkeppni Risastórra smásagna. Að þessu sinni er það Heiðný í 4. bekk sem sendi inn smásöguna sína "Hryssan og folaldið" inn í smásagnasamkeppnina og var fallega sagan hennar valin áfram.
Heiðný mun fá tíma með ritstjóra næstu helgi til að fara yfir söguna og betrumbæta ef þarf áður en hún verður gefin út. Bókmenntaborg UNESCO lætur prenta bókina handa verðlaunahöfunum sem allir fá eitt eintak fyrir sjálfa sig og annað handa skólunum.
Sagan hennar var lesin upp í gryfju og fékk hún afar góðar viðtökur! Við óskum Heiðnýju innilega til hamingju með árangurinn og óskum henni góðs gengis áfram!