Föstudaginn 30 janúar og laugardaginn 31 janúar nk. mun Skákskóli Íslands heimsækja okkur Þingeyinga og halda
skáknámskeið fyrir börn og unglinga.
Námskeiðið mun fara fram í sal Framsýnar-stéttarfélags að Garðarsbraut 26 á
Húsavík.
Námskeiðið er á vegum skákfélagsins Goðans.
Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og Davíð Kjartansson skákkennari munu kenna á
námskeiðinu.
Ekkert námskeiðsgjald verður:(breyting frá fyrri tilkynningu !) Hinsvegar verður farið með allan
hópinn á Pizzuhlaðborð á veitingahúsið Sölku á Húsavík í hádeginu á laugardeginum og
þurfa krakkarnir að hafa með sér pening fyrir því. (1100 krónur fyrir 9 ára og yngri og 1400 krónur fyrir 10
ára og eldri)
Skákfélagið mun svo bjóða þáttakendum uppá djús,gos,kex og kökur, á kaffitímum, á
meðan á námskeiðinu stendur.
Efnt verður til fjölteflis við Björn Þorfinnsson alþjóðlegan skákmeistara kl 20:30 á
föstudagskvöldið 30 janúar, sem verður öllum opið og ókeypis.
Það er ástæða til að hvetja börn og unglinga í sýslunni til þess að nýta sér þetta
námskeið nú þegar það býðst, því ekki er líklegt að þetta bjóðist á hverju ári hér
eftir. Síðasta heimsókn skákskóla Íslands til okkar var á til Húsavíkur árið 1996, þannig að kominn er
tími á heimsóknina.
Æskilegt er að áhugasamir nemendur skrái síg til þátttöku, með því að hafa samband við
formann skákfélagsins Goðans, Hermann Aðalsteinsson í síma 4643187 og 8213187 eða með því að svara þessum pósti.
Einnig verður þessi dagskrá auglýst á heimasíðu skákfélagsins Goðans fljótlega.