Jón Emil í 4. sæti í Pangea

Síðastliðinn laugardag, 17. maí, fóru fram úrslit í stærðfræðikeppninni Pangeu 2025 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í tíunda sinn. Við áttum fulltrúa frá Öxarfjarðarskóla en það var Jón Emil Christophsson í 9. bekk sem er þó ekki að taka þátt í fyrsta skipti. Hann lenti í 4. sæti af 50 í lokaúrslitum en samtals tóku 2400 nemendur í 9. bekk þátt. Jón Emil fékk 38 af 45 mögulegum stigum í lokakeppni en fyrstu 3 sætin voru með 40 stig.

Alls voru það 95 nemendur sem spreyttu sig á úrslitakeppninni og stóðu sig virkilega vel. Að keppni lokinni var boðið upp á kræsingar og skemmtiatriði áður en peningaverðlaun voru veitt efstu þremur keppendum í hvorum bekk fyrir sig. Samtals tóku 4689 nemendur úr 62 skólum þátt í ár.

Jón Emil var mjög metnaðarfullur og lagði mikla vinnu á sig í undirbúningi og við erum að sjálfsögðu afar hreykin og stolt af því að eiga svona flottan fulltrúa frá skólanum. Hann var svolítið svekktur fyrst en er núna ánægður með árangur sinn enda að hækka sig upp um heil tvö sæti! Til hamingju Jón Emil!

Hér fyrir neðan má sjá erfiðasta dæmið.

Hugi bróðir Jóns fór með honum á keppnina.