Í dag vígðu nemendur unglingadeildar klifurvegginn sem settur var upp í íþróttahúsinu fyrir helgi.
Allir nemendur prófuðu að klifra og margir prófuðu einning að tryggja einhvern sem var að klifra í veggnum. Flestir fóru ekki hátt í byrjun enda þarf bæði að tileinka sér tækni við klifrið og svo er fólk eðlilega ekki að treysta öryggisbúnaðinum í fyrstu.
En með vaxandi öryggi fóru margir að treysta sér hærra og áður en við hættum höfðu tveir nemendur náð að snerta höldurnar í efstu röð sem eru í rúmri 6 metra hæð.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í dag.