Lausar kennarastöður við Öxarfjarðarskóla

Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli með alls 60 nemendur, þar af 34 í grunnskóladeild. Leikskóladeild skólans er innahúss í grunnskólanum. Starfað er í anda Jákvæðs aga og verið að innleiða teymisvinnu og teymiskennslu í skólanum í samstarfi við MSHA.
Um er að ræða samkennslu árganga í þremur deildum; yngri (1.-4.b), mið-(5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b)
Leitað er eftir tveimur umsjónarkennurum í teymi á mið- og unglingastigi í 100% stöður, umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðu og íþrótta- og sundkennara í 40% stöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjónarkennsla í teymi
  • Íþrótta-og sundkennsla
  • Unnið skv skólastefnu Norðurþings

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Vammleysi

 

Umsóknarfrestur er til 30. apríl og skulu umsóknir sendar ásamt ferilskrá og meðmælendalista til skólastjóra á netfangið hrund@nordurthing.is. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Allar frekari upplýsingar um störfin veitir Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri í gegnum netfangið hrund@oxarfjardarskoli.is