Leikæfingar eru nú á lokametrunum fyrir árshátíð skólans á sunnudaginn. Eins og flestir vita stóð til að árshátíðin yrði í kvöld föstudag en vegna veikinda varð að aflýsa þeirri sýningu. Enn eru veikindi í hópnum og því ekki ljóst hvort allir leikarar verði með þegar á hólminn verður komið, en við vonum hið besta. Smelllið hér til að skoða myndir frá æfingum.