Öxarfjarðarskóli er þátttakandi í verkefni sem kallast ÓLD SKÚL og er á vegum Lókal performing arts sem er í eigu Ragnheiðar Skúladóttur og Bjarna Jónssonar. Þau sóttu um styrk til Öxarfjarðar í sókn á verkefni sem kallast ÓLD SKÚL og snýr að því að þróa listamannadvöl og námskeiðahald tengdu listum, sögu og náttúru, í samvinnu og samstarfi við hagsmunaaðila í Öxarfirði, þátttakendum að kostnaðarlausu.
Við njótum meðal annars góðs af því hér í Öxarfjarðarskóla með umræddu verkefni í samstarfi við Benna Hemm Hemm sem er nú búinn að vera í vinnu með unglingadeildinni í tvo daga. Þar var m.a. farið yfir hugmyndavinnu, sköpun og hvernig hægt er að koma hugmyndum sínum í framkvæmd án þess að láta hugann "ritskoða" allt og standa þar með í vegi fyrir því að sköpun í einhverri mynd eigi sér stað.
Unnið var með ljóðagerð, texta og aðrar hugmyndir sem komu frá nemendum sjálfum s.s. tónlist, myndlist o.fl. Margar góðar og skemmtilegar hugmyndir kviknuðu hjá nemendum og spennandi að sjá hvernig þeim vindur fram. Benni kemur aftur til okkar í aðra vinnulotu 19. - 21. mars en á laugardeginum 21. mars verður uppskeruhátíð á Kópaskeri ásamt nemendasýningu allra grunnskólanemenda auk elstu barna leikskólans á verkum um Móðurina en það verkefni er í samstarfi við Ingunni Svavarsdóttur YST sem er listamaður Norðurþings 2025.