Ólympíuhlaup ÍSÍ

Ólympíuhlaup ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram.

Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan. Nemendur hafa hingað til getað valið á milli þriggja vegalengda þ.e. 2,5 km, 5 og 10 km, en nú geta skólarnir ákveðið þessar vegalengdir sjálfir allt eftir því hvað umhverfi skólanna býður upp á. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá fjölda þeirra sem hlupu ásamt heildarvegalengd sem hlaupin var. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt (tekið af vef ÍSÍ)

Nemendur yngri deildar hlupu 100 metra hring en þau sem eldri voru, hlupu 400 metra hring. 
Yngri deildin hljóp alls 63 km (hver nemandi að meðaltali 4,2 km), miðdeildin alls 76,8 km (hver nemandi að meðaltali 7 km)  og unglingadeildin hljóp alls 61,2 km (hver nemandi 7,7 km) og í heildina hlupu nemendur Öxarfjarðarskóla alls 201 km. Vel gert!