Kæru foreldrar/forráðamenn
 Öskudagur á morgun, miðvikudaginn 14. febrúar.
 Á morgun er Öskudagur og foreldrafélagið stendur fyrir skemmtun fyrir nemendur. Nemendur ganga milli fyrirtækja í  skrautlegum búningum og syngja, og þar eru þær Eyrún Ösp og Hildur í forsvari. Hildur að sjálfsögðu með gítarinn í för. 😊
 Að því loknu verður farið í íþróttahús í leiki og notalegheit. Tryggvi Hrafn stendur fyrir því að allt sé klárt þar svo að hægt sé að slá köttinn úr tunnunni.
 Leikskólabörn eru velkomin með en foreldrar/foreldri beðnir að fylgja þeim ef nokkur kostur er.
 Lagt verður af stað frá Lundi kl 12:30 og er Eyrún Ösp búin að semja við skólabílstjóra um þá ferð, en foreldrar eru beðnir að sækja börn sín kl 16:00 í íþróttahúsið á Kópaskeri.
 Fyrir hönd foreldrafélagsins,
Guðrún S. K.