Samfélagið í nærmynd

Yngsta stig Öxarfjarðarskóla hefur undanfarnar vikur verið að vinna í þema sem nefnist “Samfélagið í nærmynd”. Þar er aðaláherslan á að nemendur kynnist sinni heimabyggð og þekki sögu og einkenni hennar. Það er ýmislegt sem nemendur hafa fengist við, t.d. semja spurningar fyrir góða gesti og spyrja þá spjörunum úr, sett saman nafnlausa könnun um heimilisverk, farið í vettvangsferð um samfélagið, kortlagt fyrirtæki, sveitabæi og íbúðarhús, spáð í grunnþjónustu, velt fyrir sér jafnrétti, kynjahlutverkum og margt fleira.
Við viljum þakka fyrir frábærar móttökur í fyrirtækjunum sem heimsótt voru sem og öllum þeim sem lögðu okkur lið í þessu verkefni.