Í síðustu viku kom Þorgrímur Þráinsson rithöfundur til okkar með skapandi skrif. Mið- og unglingadeild tók þátt í verkefninu sem miðar að því að nemendur eru látnir fá nokkrar kveikjur til að skrifa út frá. Þorgrímur fékk góðar viðtökur og áfram verður haldið með verkefnið innan skólans. Allir nemendur fengu að lokum áritaðar bækur eftir Þorgrím að gjöf.

