Skólaráð og stjórn foreldrafélags Öxarfjarðarskóla komu saman og ræddu skóladagatöl leik-og grunnskóladeildar fyrir næsta skólaár 2026-2027 og voru þau samþykkt. Þá hafa þau þegar verið kynnt í fjölskylduráði.
Einnig voru niðurstöður kannana Skólapúlsins ræddar en Skólapúlsinn var í fyrsta skipti notaður í skólanum þetta skólaárið. Hingað til hefur verið notast við heimagerðar kannanir sem hafa alveg þjónað tilgangi sínum. Skólapúlsinn gefur samanburð við landið og gaman að skoða hann þannig. Óhætt er að segja að niðurstöðurnar séu góðar en alltaf má bæta um betur. Til að mynda er ánægja af lestri í 2.-5.bekk marktækt meiri en á landsvísu. Nemendur og foreldrar eru mjög ánægðir með mötuneyti skólans og er ánægjan 20 - 50% meiri en gerist og gengur yfir landið. Þá líður nemendum almennt vel í skólanum sem og virkni þeirra í námi og tíðni leiðsagnarmats er langt yfir landsmeðaltali.
Almennt eru foreldrar ánægðir með skólann og starfið en finnst að bæta megi úr aðstöðu bæði innan og utandyra fyrir nemendur. Þá þarf einnig að gera umbætur á eineltisáætlun skólans en hún er í endurskoðun og verður tilbúin í vor. Þá var stutt foreldrakönnun lögð fyrir leikskólann og kom hún vel út.
Við hvetjum foreldra og þá sem áhuga hafa að kynna sér niðurstöðurnar á heimasíðu skólans undir "Mat á skólastarfi" > Skólapúlsinn
Skólaráð og stjórn foreldrafélagsins sendu einnig frá sér ályktun vegna þeirrar ákvörðunar sveitarstjórnar að fresta framkvæmdum við endurbætur á sundlauginni sem átti að verða tilbúin á vorönn 2027. Í ályktuninni er farið fram á að sundkennsla fari fram í Lundi eins og verið hefur og hefjist strax í haust 2026 og verði fram haldið þar til framkvæmda kemur. Fundargerðina má finna á heimasíðu skólans undir Skólaráð-fundargerðir.