Skólaferðalag unglingadeildar

Ferðalagið sem að þessu sinni var til Reykjavíkur gekk mjög vel. Nemendur voru til fyrirmyndar í Alþingi og sumir mjög áhugasamir eins og sést á myndunum. Ýmislegt menningarlegt hefði verið hægt að gera en nemendur læra líka mikið þegar þeir eru t.d. ekki vanir almenningssamgöngum eins og strætó og líka að þurfa að passa upp á eigur sínar en ekki síst það að mannflóran getur verið fjölbreyttari i bænum en sveitinni 😊
Lagt var af stað á mánudagsmorgni og gist á farfuglaheimili í Laugardal í 3 nætur. Mánudagur fór í ferðalagið og svo var spilað minigolf um kvöldið. Á þriðjudaginn var notast við strætó til að komast milli staða og farið í Alþingi, Escape room og Skopp. Um kvöldið sá Christoph um að elda fyrir hópinn áður en farið var í sund. Á miðvikudeginum var farið í Kringluna frekar fjölskyldugarðinn vegna veðurs og síðar í bíó. Um kvöldið var farið í keilu. Fimmtudagur fór í heimferð en við kíkt við í sundi í Varmahlíð.
Ef nemendur yrðu spurðir hvað var stæði upp úr myndu eflaust fást mismunandi svör við því; einhverjum fannst kannski Alþingi skemmtilegast, öðrum keila og aftur öðrum að fá mikinn tíma í Kringlunni.
Trúlega nutu þó allir samverunnar mest, sérstaklega kvöldin þegar kennarinn kúplaði sig frá og nemendur voru bara saman að spjalla eða spila.
Aðalmálið er að ferðin heppnaðist vel og öll komu heil heim.