Skólaferðalag yngri deildar

Nemendur og starfsfólk yngri deildar skólans fóru í dagsferð til Húsavíkur sl. miðvikudag 23. apríl.
Fyrsta stopp var á Tjörnesi þar sem gengið ofan í fjöruna við Tungulendingu. Þar kenndi ýmissa grasa og gaman að skoða steingervinga, jarðlögin og allt það sem tengist sjónum. Nemendur grilluðu sykurpúða í fjörunni og bjuggu sér til góðgæti. Því næst var haldið til Húsavíkur þar sem safnahúsið var skoðað og margt að sjá, m.a. uppstoppaðan ísbjörn. Síðan var Stéttin á Húsavík heimsótt og FABLAB skoðað. Þar fengu nemendur að búa sér til lyklakippur með nafni að eigin vali sem voru skornar út í laser skurðarvél og það þótti þeim afar áhugavert. Veðrið bauð svo sannarlega upp á að ís yrði hressandi svona í lok dags og það allra síðasta sem gert var áður en heim var haldið, var að koma við á bókasafninu. Nemendur fengu að velja sér bækur til að taka með heim. Þessi dagur var afskaplega vel heppnaður og einkenndist af blíðviðri, jákvæðni og gleði í hjarta.

Hér fyrir neðan má sjá myndir úr ferðinni.