Skólaslit fóru fram í gær og að þessu sinni var ákveðið að útskrifa einnig elsta árgang leikskólans með viðhöfn. Það var hátíðleg stund þegar þau voru kölluð á svið og talað var til þeirra og þakkað fyrir árin í leikskólanum. Að skilnaði fengu börnin bæði viðurkenningarspjöld og gular rósir.
Skólastjóri fór yfir helstu viðburði ársins og ræddi m.a. um mikilvægi góðrar samvinnu milli heimilis og skóla og þakkaði nærsamfélaginu fyrir framlag þess til skólans. Þá héldu útskriftarnemendur 10.bekkjar ræður þar sem þeir töluðu til kennara sinna og einnig hvert til annars. Umsjónarkennari unglingadeildar talaði einnig til 10.bekkinga sem flest hafa verið hér í skólanum frá leikskólaaldri. Í útskriftargjöf fengu nemendur birkitré til gróðursetja og eiga að minna á veru þeirra í Öxarfjarðarskóla. Einn starfsmaður lætur af störfum en það er Rakel Ósk sem hefur gegnt stöðu skólaliða síðastliðin ár en mun nú skipta um starfsvettvang. Henni voru þökkuð störfin í þágu skólans og fékk blómvönd að skilnaði.
Nýtt einkennismerki (logo) skólans afhjúpað en allir nemendur skólans fengu að taka þátt í að hanna og teikna logo sem síðan voru kynnt á Vorgleði skólans og gestir kusu um þau. Fimm stigahæstu merkin voru síðan send til grafísks hönnuðar, Huldu Ólafsdóttur hjá Hjartalagi, sem hannaði fallega merkið okkar og við erum afskaplega stolt af og ánægð með.
Það sýnir birkitré sem er einkennandi fyrir umhverfi skólans og vex upp úr bók sem vísar til vaxtar, visku og þroska en græni liturinn er litur náttúrunnar og táknar m.a. vöxt og öryggi. Ákveðið var eftir umræður innanhúss og einnig í foreldrakönnun að bæta *metnaði* í einkunnarorð skólans en þau voru fyrir *jákvæðni – vinátta – virðing*. Okkur finnst skólastarfið einkennast af metnaði allra; nemenda, kennara og starfsfólks til að gera sífellt betur.
Við göngum glöð út í sumarið – Takk fyrir veturinn!