- Fréttir
- Þjónusta
- Starfsfólk
- Hafa samband
- Skólinn
- Skólinn
- Mat á skólastarfi
- Foreldrafélag
- Skólaráð
- Skólaheilsugæsla
- Aðgerðaráætlanir
- Hagnýtar upplýsingar
- Leikskóladeildin
- Nemendur
Föstudaginn 22.maí var Öxarfjarðarskóla slitið þetta skólaárið. Þá voru 3 nemendur úr 10. bekk útskrifaðir ásamt 5 börnum úr Lundarkoti sem hefja nám við skólann í haust. Öll fengu þau birkitré að skilnaði.
Tveir starfsmenn voru kvaddir að þessu sinni; þær Hulda Hörn Karlsdóttir sem starfað hefur við skólann sem matráður síðastliðin 18 ár og Rakel Anna Boulter sem gegndi stöðu umsjónarkennara á mið- og unglingastigi undanfarin 2 ár. Þeim voru þökkuð störf sín við skólann og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Ágrip af ræðu skólastjóra frá skólaslitum
Skólaárið var viðburðaríkt að venju. Við fengum margar heimsóknir og má t.d. nefna breska sendiherrann á Íslandi Dr Bryony Mathew sem kom til að vekja athygli á bókinni Tæknitröll og íseldfjöll. Þá kom Þorgrímur Þráinsson enn á ný til okkar með fyrirlesturinn "Verum ástfangin af lífinu" og svo „Skapandi skrif. Samfélagslögreglan kom í tvígang til að kynna störf sín, einnig ræða umferðarreglur og fara yfir hjól og hjálma yngri deildar nemenda. Dr. Viðar Halldórsson hélt fyrirlestur fyrir mið- og unglingastig sem bar yfirskriftina "Félagslegir töfrar“. Þá er stutt síðan Benni Hemm Hemm tónlistarmaður var með vinnustofur fyrir unglingastigið á vegum ÓLD Skúl listaverkefnisins. Skákvinir okkar frá Grunnskóla Þórshafnar komu og tefldu við mið- og unglingastig.
Samstarf við stofnanir og félög:
Öllum þessum aðilum er þakkað fyrir gott og gefandi samstarf og stjórn foreldrafélagsins og skólaráði fyrir sérstaklega gott samstarf og stuðning við skólastarfið.
Nærsamfélaginu, fyrirtækjum og félagasamtökum fyrir þeirra framlög til skólans sem eru og hafa verið ómetanleg.
Þjóðgarðinum eru færðar sérstakar þakkir fyrir að vera sá sterki bakhjarl sem hann hefur verið undanfarin ár með því að gefa nemendasjóði endurvinnanlegar drykkjarumbúðir. Það vegur mjög þungt í ferðasjóð allra nemenda og mun unglingastigið t.a.m njóta góðs af því þar sem þau eru að fara í 6 daga skólaferðalag til Þýskalands í byrjun júní með umsjónarkennurum sínum.
Þátttaka í ýmsum viðburðum og keppnum
Nemendur unglingastigs tóku í fyrsta skipti þátt í Skólahreysti þann 29.apríl sl með góðum árangri. Þá tóku 9 nemendur af unglingastiginu einnig þátt í Pangea stærðfræðikeppninni og fjórir komust áfram en góð þátttaka Öxarfjarðarskóla undanfarin ár hefur einmitt vakið athygli en hlutfallstíðni þátttöku Öxarfjarðarskóla er 44% á móti 2% á landsvísu. Árleg þátttaka var einnig á Laugamót og nemendur 1. – 7.bekkja tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni á landsvísu og höfnuðu í 7.sæti!
Í skólanum okkar ríkir fagmennska og metnaður. Við vorum að ljúka fyrsta árinu okkar af þremur í þróun leiðsagnarnáms og leiðsagnarmats í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar í Háskólanum á Akureyri. Fjölbreyttar kennslu-og matsaðferðir hafa verið prófaðar sem lofa mjög góðu og ánægja er með, bæði meðal nemenda og kennara
Skólapúls og Matsferill
Kennarar við Öxarfjarðarskóla eru framúrskarandi og leggja sig ávallt fram um að veita sem besta þjónustu og stuðning við nemendur og foreldra.
Nýlegar niðurstöður Skólapúlsins vitna um það en þær sýna að 91% foreldra telja að börnunum þeirra líði almennt vel í skólanum, almenn ánægja er með nám og kennslu og einnig hversu vel skólinn mætir þörfum nemenda eða 94% foreldra.
Þá er mikil ánægja með matinn í mötuneytinu en bæði nemendur og foreldrar hér eru 20%- 50% ánægðari með matinn en gerist og gengur á landsvísu!
Einnig er ánægjulegt fyrir skólastjóra að 97% foreldra eru ánægðir með stjórn skólans og er ástæða til að þakka það traust.
Í nemendakönnuninni kemur fram marktækt meiri ánægja af lestri í Öxarfjarðarskóla en á landsvísu. Það sama má segja þegar kemur að þrautseigju í námi, áhuga á stærðfræði og náttúrufræði sem og trú nemenda á eigin vinnubrögðum og námsgetu. Þá er einnig marktækt meiri munur á nemendum hér og á landsvísu sem samsama sig við nemendahópinn, sambandi þeirra við kennarana, virkni í tímum og tíðni leiðsagnarmats.
Nú hafa niðurstöður borist úr Matsferli samræmdu námsmati í stærðfræði og lesskilningi en allir nemendur frá 4. og upp í 10.bekk eða alls 25 tóku þessi próf. Skemmst er frá því að segja að nemendur okkar stóðu sig virkilega vel þar sem 14 nemendur af 25 eða 56% eru yfir meðaltali í stærðfræði og 9 yfir meðaltali í lesskilningi eða 36% en nær allir eru í meðaltali. Í Lesfimi sem mælir leshraða standa nemendur okkar sig einnig vel en langflest mælast um og yfir meðaltali þar en þarna skiptir samstarf heimilis og skóla gríðarlega miklu máli og daglegur heimalestur er nauðsynlegur. Foreldrar munu fá niðurstöðurnar úr Matsferli í gegnum island.is þann 1. júní nk þar sem þeim gefst tækifæri á að skoða þær nánar með börnunum sínum.
Við skólann starfar eins og áður segir einvalalið sem ég er ákaflega stolt af og samanstendur af samhentum og góðum hópi fólks sem er reiðubúinn að gera sitt allra besta í þágu nemenda. Það er okkur sem störfum í skólanum kappsmál að öllum nemendum líði vel, séu hér örugg og geti leitað til starfsfólks með það sem kann að koma upp á. Skólinn á að vera griðastaður nemenda.
Við erum einnig þakklát fyrir gott og gefandi samstarf við foreldra sem er afskaplega mikilvægt því það að mennta börnin er alls ekki á einni hendi heldur samstarfsverkefni allra aðila skólasamfélagsins.
Með þessar upplýsingar í farteskinu, skulum við halda þessum góða árangri litla skólans okkar á lofti. Verum sanngjörn í allri umræðu um skólann og starfið, tölum starfið upp, vöndum orðræðuna alls staðar og leitumst við að tala saman og finna lausnir í sameiningu þegar eitthvað bjátar á en ekki síður að vera dugleg að upplýsa þegar vel gengur.
Gangið glöð út í sumarið og takk fyrir veturinn!














