Stefnt er á að sund hefjist í næstu viku. Friðgeir er í óða önn að undirbúa laugina og þann búnað sem þarf. Við óskum eftir því að nemendur hafi með sér bæði sundföt og íþróttaföt meðan á sundúthaldi stendur. Þannig að ef af einhverjum ástæðum er ekki hægt að fara í sund er farið í íþróttahús og eins ef eitthvað þarf að skipta hópum. Ekki er hægt að treysta á að til séu sundföt eða handklæði ef sundbúnaður gleymist heima. Stundatöflur nemenda breytast örlítið meðan á sundúthaldi stendur. Við munum fylgja nýrri stundaskrá frá mánudeginum 1. april þó að sund frestist eitthvað fram í vikuna.Â