Mötuneyti

Í mötuneyti Öxarfjarðarskóla er þess kappkostað að bjóða mat sem er hollur og næringarríkur skv manneldisráði. Grænmeti og ávextir eru í boði daglega. Ef um fæðuóþol eða fæðuofnæmi er að ræða, þarf að skila inn læknisvottorði þar um.

Frá og með hausti 2024 eru skólamáltíðir gjaldfrjálsar fyrir grunnskólabörn. 

Starfsfólk mötuneytis 2024-2025:

Hulda Hörn Karlsdóttir Matráður
Rakel Ósk Sigurðardóttir Aðstoðarmatráður