Í dag er dagur íslenskrar náttúru og samkvæmt skóladagatali var ákveðið að fara í vettvangsferð í þjóðgarðinn en því var flýtt til fimmtudagsins 11.september.
Þá fóru allir nemendur Öxarfjarðarskóla í vettvangsferð í Jökulsárgljúfur. Þar tók Róbert Karl landvörður á móti nemendum, fjallaði um hlutverk þjóðgarða og mikilvægi náttúrutúlkunar.
Í dag fengum við breska sendiherrann á Íslandi Dr Bryony Mathew ásamt fylgdarliði í heimsókn en tilgangurinn var að vekja athygli á bókinni Tæknitröll og íseldfjöll.
Þá kom Þorgrímur Þráinsson enn á ný til okkar með fyrirlesturinn "Verum ástfangin af lífinu".
Í gær var Öxarfjarðarskóli settur og í dag komu nemendur í fyrsta kennsludag þessa skólaárs. Ekki var laust við að spenningur væri í hópnum enda alltaf gaman að koma saman, hitta vinina og hefja námið.