Síðastliðinn fimmtudag 1.október var haldinn foreldrafundur í skólanum. Að þessu sinni var ákveðið að breyta til og fá aðila frá samtökunum Heimili og skóla til að leiða vinnustofu með foreldrum. Byrjað var á að kjósa í stjórn foreldrafélagsins en allir stjórnarmenn gáfu kost á sér aftur. Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem lögð var fyrir nemendur 4. -10.b á vordögum en síðan tók Guðbjörg frá Heimili og skóla við keflinu og leiddi umræður. Góður rómur var gerður að þessu fyrirkomulagi og voru foreldrar almennt sáttir með fundinn þó að mætingin hefði mátt vera betri. Boðið var upp á fínar veitingar sem féllu vel í kramið hjá fundargestum.
Fundargerðina má finna hér
Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 má sjá hér.