Skólaráð og stjórn foreldrafélags Öxarfjarðarskóla komu saman 25.mars sl. og ræddu skóladagatöl leik-og grunnskóladeildar fyrir næsta skólaár 2026-2027 og voru þau samþykkt. Þá hafa þau þegar verið kynnt í fjölskylduráði.
Einnig voru niðurstöður kannana Skólapúlsins ræddar en Skólapúlsinn var í fyrsta skipti notaður í skólanum þetta skólaárið. Hingað til hefur verið notast við heimagerðar kannanir sem hafa alveg þjónað tilgangi sínum ágætlega en Skólapúlsinn gefur samanburð við landið og gaman að skoða hann þannig. Óhætt er að segja að niðurstöðurnar séu góðar fyrir skólann okkar en alltaf má bæta um betur.
Skákfélagið Goðinn undir leiðsögn Hermanns og Hilmars hafa verið með skákkennslu í Öxarfjarðarskóla í vetur fyrir alla aldurshópa. Þeir hlutu til þess styrk frá Norðurþingi og hefur kennslan farið fram mánaðarlega síðan í september en nú fer að líða að lokum. Í gær komu þeir færandi hendi og gáfu skólanum 10 skáksett sem við erum afskaplega þakklát fyrir. Hér má sjá nokkra af skákmönnum framtíðarinnar sem hafa verið áhugasamir í vetur.
Nýendurskoðuð Mennta- og læsisstefna Norðurþings 2026-2031 hefur verið samþykkt í sveitarstjórn Norðurþings sem byggir á skólastefnu frá 2020. Samkvæmt lögum um leik- og grunnskóla skal hvert sveitarfélag setja sér stefnu um skólahald og nær þessi nýja menntastefna yfir alla starfsemi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla Norðurþings.
Búið er að kynna stefnuna fyrir starfsfólki leik- og grunnskóla og eru foreldrar hvattir til að kynna sér hana hér:
https://www.nordurthing.is/static/files/Menntun/mentastefna-nordurthings.pdf