Fréttir

Myndir frá skólaslitum

http://oxarfjardarskoli.nordurthing.is/myndir/gallery/Vetur_08-09/skolaslit/IMG_6187.JPGÖxarfjarðarskóla var slitið í kvöld. Nemendur úr yngstu deild spiluðu á blokkflautur, en þau hafa öll verið í vikulegum blokkflaututímum hjá Birni Leifssyni í vetur. Guðrún skólastjóri fór með smá ræðu þar sem hún rakti meðal annars það helsta úr skólastarfi vetrarins. Síðan voru 10. bekkingar útskrifaðir og þeim afhent einkunnablöð sín og rós. Að því loknu hittu nemendur umsjónarkennara sína í stofum þar sem allir hinir fengu sín vitnisburðarblöð. Að lokum var boðið upp á kaffi og meðlæti í mötuneytinu.

Starfólk skólans þakkar nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum skólans kærlega fyrir ánægjulegt samstarf í vetur og óskar öllum góðs sumars.

Skoða myndir

Skólaslit Öxarfjarðarskóla

Öxarfjarðarskóla verður slitið föstudaginn 15. maí kl 18:00. Þar verður 10. bekkur útskrifaður og kvaddur samkvæmt venju.
Umsjónarkennarar munu hitta sína nemendur og afhenda námsmat.
Boðið verður upp á kaffiveitingar í lokin.

Myndir af smí­ðagripum

http://oxarfjardarskoli.nordurthing.is/myndir/gallery/Vetur_08-09/Smidamyndir/P3020168.JPGBói hefur verið duglegur að taka myndir af þeim gripum sem nemendur hafa smíðað hjá honum í vetur. 1.-8. bekkur hafa verið í föstum tímum í smíðum í vetur en 9. 0g 10. bekkur hafa haft smíðar sem valfag. Margir stórglæsilegir gripir hafa orðið til og er virkilega gaman að skoða þá.

Myndirnar er hægt að skoða hér