Fréttir

Meira um burðarstólpa

Björgunarsveitirnar okkar gegna grí­ðarlega stóru hlutverki og er borið uppi af sjálfboðaliðum. Björgunarsveitirnar taka þátt í­ björgun, leit og gæslu og leitar löggæslan til björgunarsveitanna þegar aðstæður sem þessar koma upp og þær koma með mannskap sinn og búnað. Björgunarsveitirnar vinna ómetanlegt starf í­ þágu almannaheilla í­ samvinnu við stjórnvöld og hafa bjargað ófáum mannslí­fum. Félagasamtök sem kvenfélögin okkar og björgunarsveitirnar eru samfélaginu okkar ómetanleg. Á myndinni má sjá félaga í­ Björgunarsveitinni Núpum í­ Öxarfirði og Stefáni úr Mývatnssveit í­ Dettifossútkalli.

Burðarstólpar í­ samfélaginu okkar

Félagasamtök sem byggja á sjálfboðaliðum, takast á við ótal verkefni og láta gott af sér leiða, eru ómetanlegir burðarstólpar í­ samfélaginu og í­ því­ efni langar mig til að minnast á kvenfélögin og björgunarsveitirnar. Þann 1. febrúar var dagur kvenfélaganna á Íslandi. Saga kvenfélaga á Íslandi er merkileg og sér yfir 100 ára sögu. Í áraraðir hafa kvenfélögin okkar staðið við bakið á samfélaginu okkar og látið gott af sér leiða. Það eru ófá verkefni sem kvenfélögin taka að sér og það er ómetanlegt hversu margir eru tilbúnir til þess að starfa sem sjálfboðaliðar í­ félagasamtökum sem kvenfélögunum okkar. Í okkar dreifbýla og ví­ðfeðma samfélagi, Öxarfirði, er svo margt sem væri illmögulegt ef þessara kvenna nyti ekki við. Þetta eru aðdáunarverðar konur sem leggjast á eitt við að styrkja sitt samfélag. Í gegnum árin hafa kvenfélögin í­ skólasamfélagi Öxarfjarðarskóla látið sér annt um skólastarfið og sýnt skólanum stuðning á margan hátt m.a. gert okkur kleyft að eignast búnað sem annars væri erfitt að setja fjármagn í­. Nú sí­ðast þennan vetur hafa kvenfélögin hér gert okkur mögulegt að kaupa skjávarpa í­ kennslustofu unglingastigs, miðstigs og yngsta stigs og við kunnum Kvenfélaginu Stjörnunni, Kvenfélagi Öxarfjarðar og Kvenfélagi Kelduhverfis, bestu þakkir fyrir þennan höfðinglega stuðning. Þetta gerir okkur auðveldara að miðla kennsluefni á rafrænu formi til nemenda t.d. fræðslumyndum o.fl. Á myndinni má sjá fulltrúa kvenfélaganna í­ Öxarfirði með einn skjávarpanna, þær Ástu Helgu Viðar, Kvenfélaginu Stjörnunni, Sigurfljóðu Sveinbjörnsdóttur, Kvenfélagi Kelduhverfis og Ann-Charlotte Fernholm, Kvenfélagi Öxarfjarðar ásamt skólastjóra.

Við auglýsum eftir starfsmanni í­ leikskóldeild Öxarfjarðarskóla á Kópaskeri

Vegna ákveðinna aðstæðna viljum við ráða starfsmann í­ 100% starf við leikskóladeild Öxarfjarðarskóla, á Kópaskeri. Upplýsingar gefur skólastjóri, Guðrún S. Kristjánsdóttir, í­ sí­ma 465-2246 eða 892-5226. gudrunsk@nordurthing.is

Jón Alexander Íslandsmeistari í­ Kúluvarpi

Sí­ðast liðna helgi, 30-31. janúar fór fram í­ Kaplakrika Meistaramót Íslands 11-14 ára. 354 keppendur voru skráðir til leiks frá 19 félögum. Gestaþátttakendur frá Treysti í­ Færeyjum settu skemmtilegan svip á mótið. Það er gaman að geta þess að nemandi í­ 8. bekk Öxarfjarðarskóla, Jón Alexander Arthúrson, vann gullið í­ sí­num aldursflokki og er Íslandsmeistari í­ Kúluvarpi. Á myndinni má sjá Jón Alexander með verðlaunin ásamt þáttakendum sem lentu í­ öðru og þriðja sæti.

Norðurorg

Þessa sömu helgi og Meistaramótið fór fram, eða föstudaginn 29. janúar var haldin söng og tónlistarkeppni á Húsaví­k. Atriðin sem kepptu voru sextán og og fleiri hundruð ungmenni mættu á staðinn. Það þarf kjark til að standa frammi fyrir slí­kum fjölda á sviði og flytja söngatriði. Jóní­na Freyja Jónsdóttir, nemandi í­ 8. bekk Öxarfjarðarskóla tók þátt í­ þessari keppni, með lagið To make you feel my love, og stóð sig með mikilli prýði. Undirrituð naut þeirra forréttinda að fá að fylgjast með hverju ungmenninu af öðru gleðja salinn með söng og tónlist

Öskudagur

Öskudag ber upp á miðvikudaginn 10. febrúar n.k. Foreldrafélagið mun lí­kt og undanfarin ár, bjóða upp á dagskrá fyrir grunnskólabörnin þann dag eftir hádegi. Að afloknum hádegisverði í­ skólanum munu þau sem vilja fá far með rútunni út eftir til Kópaskers. og syngja fyrir starfsfólk fyrirtækja þar. Á leiðinni verður komið við í­ Silfurstjörnunni. Eftir söngferðalagið verður farið í­ leiki í­ í­þróttahúsinu (Pakkhúsinu). Foreldrar eru beðnir að sækja börn sí­n kl. 16.00. Leikskólabörn eru velkomin í­ hópinn en verða þá að vera í­ fylgd foreldra/ forráðamanna. Börnin fá leyfi úr grunnskólanum eftir hádegið. Fararstjórar sönghóps verða Guðrún Lilja s. 866 29 22, Guðrún Jónsdóttir s. 842 43 62 og Hildur Sigurðar s.865 0293