Fréttir

Haustgleði framundan

Undirbúningur okkar árlegu Haustgleði, sem verður 5. nóvember, er hafinn. Í ár er hagyrðingaþema og erum við búin að fá til liðs við okkur sjö hagyrðinga úr heimabyggð sem verða með okkur þetta kvöld. Unglingarnir, ásamt Hrund sem heldur utan um verkefnið, eru búnir að heimsækja þessa snillinga og taka við þá viðtöl. Anna Englund og Stefán Haukur ætla að halda utan um matseldina með unglingunum. Tónlist mun einnig lita dagskrána. Reynir heldur utan um þann þátt með nemendum.Textar úr heimabyggð verða sungnir við þekkt lög og Ásdí­s Einarsdóttir les verðlaunasöguna sí­na „Kennaradraugarnir“. Ég segi það enn og aftur hér er hæfileikafólk á hverju strái og ómetanlegt hversu margir eru tilbúnir að leggjast á árarnar með okkur. Kær kveðja, Guðrún S. K.

Forvarnir

Í gær, fimmtudaginn 22. október, kom Jóhanna Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri hjá „Ráðgjöf í­ reykbindindi“ tilnefnd af fagráðum landlæknis um lýðheilsu, með fræðsluerindi fyrir miðstig og unglingastig, um skaðsemi tóbaks.

Verðlaun fyrir smásögu heim í­ Öxarfjarðarskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn, nemendur/ starfsfólk Kennarasambandið og Heimili og skóli stóðu fyrir smásagnakeppni meðal leik- grunn- og framhaldsskólanemenda og voru verðlaun fyrir bestu smásögurnar veitt í­ gær, 5. október, á Alþjóðadegi kennara. Keppnisflokkar voru fjórir; leikskólinn, grunnskólinn - 1. til 6. bekkur, grunnskólinn 7. til 10. bekkur og framhaldsskólinn. Þemað að þessi sinni var „kennarinn“. Það var hún Ásdí­s Einarsdóttir, nemandi í­ Öxarfjarðarskóla, sem sá og sigraði, í­ flokknum 1. til 6. bekkur, fyrir söguna "Kennaradraugurinn". Við óskum henni innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Í flokknum, Leikskólinn, var það Kjartan Kurt Gunnarsson, leikskólanum Barnabóli, Þórshöfn, sem hlaut verðlaun fyrir söguna "Kennari minn". Það er ekki að spyrja að Norður Þingeyingum og fámennu skólunum :-) Aðrir vinningshafar voru: Marta Ellertsdóttir, nemandi í­ Garðaskóla (7.-10. bekkur), fyrir söguna "Emelí­a og kennarinn". Dagný Gréta Hermannsdóttir, nemandi í­ Menntaskólanum í­ Kópavogi, fyrir söguna "Bananabrauð". Verðlaunasögurnar verða birtar í­ Skólavörðunni. Dómnefnd var skipuð Brynhildi Þórarinsdóttur, rithöfundi og dósent, Kristjáni Jóhanni Jónssyni, dósenti á Menntaví­sindasviði HÍ, og Bryndí­si Jónsdóttur, framkvæmdastjória SAMFOKS. Verðlaunahafarnir fengu vandaða lestölvu frá BeBook og rafbók að eigin vali. Úrslitin ásamt myndum er að finna á vef KÍ : http://ki.is/um-ki/utgafa/frettir/2886-urslit-i-smasagnasamkeppninni-gerd-kunn Kær kveðja, Guðrún S. K.

SAFT, sem stendur fyrir: Samfélag, fjölskylda og tækni, kom í­ heimsókn í­ Öxarfjarðarskóla með fræðslu fyrir nemendur

Í dag komu þau Sólveig og Björn frá SAFT og fræddu nemendur miðstigs og unglingastigs um öruggari netnotkun. Það er mikilvægt að gera nemendum grein fyrir þeim hættum sem leynast í­ þessu völundarhúsi tækninnar, því­ auðvelt er að villast þar. SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB Á þessum vef ; saft.is er að finna heilræði fyrir foreldra og leiðbeiningar um örugga netnotkun barna. Kær kveðja, Guðrún S. K.