Fréttir

SAFT, sem stendur fyrir: Samfélag, fjölskylda og tækni, kom í­ heimsókn í­ Öxarfjarðarskóla með fræðslu fyrir nemendur

Í dag komu þau Sólveig og Björn frá SAFT og fræddu nemendur miðstigs og unglingastigs um öruggari netnotkun. Það er mikilvægt að gera nemendum grein fyrir þeim hættum sem leynast í­ þessu völundarhúsi tækninnar, því­ auðvelt er að villast þar. SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB Á þessum vef ; saft.is er að finna heilræði fyrir foreldra og leiðbeiningar um örugga netnotkun barna. Kær kveðja, Guðrún S. K.

Góðar gjafir til skólans

Kvenfélag Öxfirðinga og Kvenfélag Keldhverfinga hafa fært skólanum veglegar gjafir.

Brunarvarnaræfing í­ Öxarfjarðarskóla

Brunavarnaræfing var haldin í­ Öxarfjarðarskóla í­ gær, þriðjudaginn 8. september. Grí­mur slökkviliðsstjóri kom og hélt utan um æfinguna. Kerfið var sett í­ gang og húsið rýmt. Mikilvægt er að halda æfingu sem þessa a.m.k. tvisvar á ári og slí­pa af vankanta. GSK

Skuggamyndir frá Býsans

Í dag heimsótti skólann hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans og tók nemendur og starfsfólk í­ ferðalag um Balkanskagann.