Fréttir

Mánudaginn 6. október er 10. bekk ásamt umsjónarkennara boðið á kynningu FSH

10 bekkur ásamt umsjónarkennara fer á kynningu í­ boði FSH, á mánudaginn kemur, sem býður þeim upp á kynningu og í­ mat. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við Christoph í­ skólanum eða á christoph@volundur.is Þessi dagur er orðinn svolí­tið flókinn, en allt er hægt að leysa með góðum vilja. Kristján Ingi mun sjá um unglingadeildina, þ.e. 8.-9. bekk, þennan dag. Kær kveðja, Guðrún S. K.

Mánudaginn 6. október er leikskólafólk á námskeiði - leikskóladeildir samt opnar

Leikskóladeildir eftir sem áður opnar. Sí­fellt eru gerðar meiri kröfur um endurmenntun á öllum skólastigum og fer leikskólafólkið mitt á námskeiðið Stig af stigi, sem verður á Akureyri þennan dag. Leikskóladeildir starfa samkvæmt venju. Í Lundi verða það þær Ann- Charlotte, Conny og Jenny sem ætla að manna leikskóladeildina. Þetta eru konur sem leikskólabörnin þekkja vel. Conny starfar með deildinni í­ hverri viku. Við stefnum lí­ka á að fá góða konu úr grennd (þær hafa nokkrar verið í­ afleysingum á leikskóladeild) til að koma þennan dag og vera með okkur. Við hin, í­ grunnskóladeild tökum á okkur aukin verkefni þennan dag svo af þessu geti orðið. Á Kópaskeri ætlar Marí­a Kristí­n ásamt Frí­ðu Halldórs að standa vaktina svo þær Áslaug Svava og Kristí­n í“sk geti sótt námskeiðið. Kveðja, GSK

Starfsdagur í­ Öxarfjarðarskóla 3. október

Starfsdagur í­ grunnskóladeild föstudaginn 3. október næstkomandi Ég minni á starfsdag kennara samkvæmt skóladagatali þann 3. október næstkomandi. Þá er enginn skóli fyrir grunnskóladeild, þar af leiðandi enginn skólaakstur og foreldrar leikskólabarna þurfa að gera aðrar ráðstafanir. Leikskóladeildir, báðar, starfa samkvæmt venju þennan dag. Kveðja, GSK

Félagsstarf 8.-10. b. skólaárið 2014-15

Félagsstarf Á föstudaginn kemur, þann 3. október, hefst félagsstarf 8.-10. bekkjar sem verður í­ umsjá Connýar. Hér fyrir neðan eru upplýsingar (innihald) frá Conný sem hefur verið svo væn að leggja þessu mikilvæga starfi lið, einu sinni enn, og er það í­ samstarfi við tómstunda- og æskulýðssvið: kveðja, Guðrún S. K.