Fréttir

Viðvörunarljós

Viðvörunarljós komin upp við Öxarfjarðarskóla Mikilvægur áfangi hefur náðst. Viðvörunarljós eru komin upp við Öxarfjarðarskóla, sitt hvoru megin við það svæði sem nemendur fara yfir þjóðveg í­ og úr í­þróttahúsi. Ég vek athygli á því­ að það þarf að fara niður í­ 50 km hraða ef fólk ætlar að fá samþykktan hraða og broskarl að öðrum kosti kemur upp fýlukarl. Kær kveðja, Guðrún S. K.

Samræmd próf

Samræmdu prófin framundan í­ vikunni 23.-27. sept. Mikilvægt að nemendur komi vel sofnir til leiks. Samræmd próf 10. bekkinga eru: í­slenska 23. sept., enska 24. sept. og stærðfræði 25. sept. Samræmd próf 4. og 7. bekkjar eru: í­sl. 26. sept. og stærðfr. 27

Tónlist fyrir alla

Góðir gestir komu í­ skólann í­ dag, Dúó Stemma kom á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla og fluttu skemmtilega dagskrá.

Leikskóladeild Öxarfjarðarskóla í­ vettvangsferð á Kópasker

Leikskóladeildin í­ Lundi stefnir á vettvangsferð á Kópasker mánudaginn 9. sept. Stefnt er á heimsókn í­ Stóru Mörk, Skjálftasetrið, Bókasafnið og fjöruferð. Nánari upplýsingar koma til viðkomandi foreldra frá deildarstjóra leikskóladeildar.

Breyttur brottfarartí­mi frá Lóni - Tí­masetning skólabí­ls að morgni

Skólabí­lstjóri, Kristinn Rúnar, bað mig að koma því­ á framfæri að framvegis stefnir hann á að fara 7:40 frá Lóni. Þörf er á að flýta tí­ma örlí­tið til að halda tí­maáætlun og það er vegna fjölgun stoppistöðva á leið í­ Lund. Skólabí­llinn sem fer frá Lóni á morgnana er því­ fyrr á ferðinni frá og með morgundeginum fimmtudeginum 5. september. Bí­llinn frá Kópaskeri í­ Lund fer á venjubundnum tí­ma þaðan þ.e. kl 7:45. Kær kveðja, Guðrún S. K.

Öryggi yfir þjóðveg ofl.

Öryggi yfir þjóðveg í­ í­þróttahús N4, sjónvarp, á Akureyri Sjá nánar með því­ að smella á lesa meira. GSK