Fréttir

Fjör á öskudaginn

Við erum búin að fá leyfi hjá skólastjóra til að hafa öskudagsfjör eftir hádegi á miðvikudaginn 6. mars. (öskudag) Búið er að tala við skólabí­lstjórana Ágústu og Stefán og þau ætla að keyra út á Kópasker uppúr kl 12:30, með viðkomu í­ Silfurstjörnunni. Það ætti að vera pláss fyrir alla nemendur með þeim. Einnig er trúlegt að einhverjir foreldrar fari á bí­l. Þegar komið er á Kópasker verður gengið í­ fyrirtækin og sungið. Að því­ loknu verður farið í­ í­þróttahúsið, farið í­ leiki og haft gaman saman. Gaman væri, ef þeir foreldrar sem tök hafa á, gætu verið með í­ fjörinu :-) Foreldrar verða að sjá um að sækja börnin, ekki seinna en kl. 16;00. Með kveðju, stjórn foreldrafélagsins:Eyrún, Eyrún Ösp, Guðrún Lilja Dam og Jón Ármann.

Tónleikar Tónlistarskólans verða þriðjudaginn 12. mars næstkomandi The musicschool will have it´s concert on the 12th of mars (Tuesday).

Tónleikar Tónlistarskólans verða þriðjudaginn 12. mars næstkomandi kl 17:30. The music school will have it´s concert on the 12th of mars (Tuesday) 17:30. Tónleikar Tónlistarskólans verða næstkomandi þriðjudag, 12. mars, í­ Lundi kl 17:30. Nánari upplýsingar sí­ðar.

Nemandi úr Öxarfjarðarskóla, Dagbjört Nótt bar sigur úr bí­tum á Tónkví­slinni 2019

Nemandi úr Öxarfjarðarskóla, Dagbjört Nótt bar sigur úr bí­tum á Tónkví­slinni 2019. Tónkví­slin 2019 var haldin þann 23. febrúar sí­ðast liðinn og var það hún Dagbjört okkar Nótt sem kom, sá og sigraði Tónkví­slina í­ ár með laginu: Take me to church eftir Hozier. Til hamingu Dagbjört, við erum öll stolt af þér 😊 Allt frá árinu 2006 hefur Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum staðið fyrir Tónkví­slinni, einum glæsilegasta tónlistarviðburði Norðurlands eystra, ef ekki landsins í­ heild. Þó Tónkví­slin hafi komið til sem framhaldsskóla-söngkeppni hefur hún þróast út í­ stærri viðburð og væri í­ dag mun sambærilegri Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson - tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar - lýsti Tónkví­slinni þannig að öll umgjörð hennar hefði verið metnaðarfyllri en hjá Söngvakeppni Sjónvarpsins þegar hann kom sem dómari á Tónkví­slina árið 2016.

Unglingastig Öxarfjarðarskóla á Þeistareykjum

Unglingastigið er á Þeistareykjum ásamt þeim Kidda, Christoph og Vigdí­si. Þau lögðu af stað í­ gær og gistu í­ nótt í­ skálanum á Þeistareykjum. Þungfært var uppeftir en hópurinn naut aðstoðar Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsaví­k, sem ætlar einnig að lóðsa þau niðureftir. Ekki amalegt að fá björgunarsveitirnar til liðs við sig og margt af þeim hægt að læra. Björgunarsveitarbí­ll björgunarsveitarinnar okkar hér, Núpa, er einnig með í­ för. Undirituð heyrði í­ hópnum nú fyrir hádegi og var hann þá á leið í­ Togarahelli, sem er viðamikill hellir þar í­ grennd. Svona ferð er ögrandi og reynir á þolrifin en skilur yfirleitt eftir sig sigurtilfinningu. Þetta gat ég! Hér til hliðar er mynd af glaðbeittum hóp við skálann á Þeistareykjum.

Þemavika, 18. - 22. febrúar 2019, í­ Öxarfjarðarskóla

Nemendur fengu í­ þessa sinn tækifæri á að fá að koma með eigin hugmyndir um hvað þá langaði að gera, og litast þemavikan af hugmyndum þeirra, hvað þá langaði að skapa. Við reyndum að koma til móts við þeirra óskir eins og hægt er. Hér er stiklað á því­ helsta sem verður í­ gangi þessa viku: Það verður boðið upp á tungumálakennslu og fengu nemendur að velja á milli fimm tungumála. Við fáum einnig inn leiðbeinendur í­ í­þróttir sem munu æfa með nemendum handbolta og fóbolta. Eins mun verða boðið upp á jóga þessa viku, ekki veitir af í­ hraða og áreiti nútí­mans að læra að grí­pa til þeirra verkfæra sem felast í­ því­ að stunda í­hugun. Unglingastigið stefnir á að fara í­ fjallgöngu á miðvikudaginn og ætlar að gista eina nótt í­ skála á Þeistareyki. Gengið verður um svæðið á fimmtudaginn og hugsanlega skoðaður hellir, þar í­ grennd, ef hægt er. Kiddi, Christoph og Vigdí­s munu halda utan um hópinn. Mikilvægt er að huga að góðum útivistarfatnaði í­ tí­ma, fyrir þetta ferðalag. Það verður einngi boðið upp á önnur verkleg verkefni; tækni lego, hanna bí­l og strawbees. https://strawbees.com/ . Einstaka nemendur ætla að shanna og sauma á sig flí­kur. Hluti nemenda ætlar að hanna og skapa samfélag, nokkrir ætla að skrifa leikrit og enn aðrir að gera myndasögur. Skákmót varður haldið í­ vikunni og munu bæði nemendur og kennarar taka þátt. Við byrjum vikuna á skákkennslu fyrir nemendur og starfsfólk og munu nokkrir nemedum kenna okkur hinum. Ef allt gengur upp munu úrslit verða ljós föstudaginn 22. febrúar. Föstudaginn 22. febrúar kl. 11.00, verður afrakstur vikunnar sýndur í­ gryfju og eru allir velkomnir að koma og skoða uppskeru vikunnar með okkur. Vonandi sjá einhver ykkar sér fært að kí­kja til okkar.

Á morgun, fimmtudaginn 14. febrúar kl 19:30 verður unglingastigið með félagsvist í­ Lundi

Á morgun, fimmtudaginn 14. febrúar kl 19:30 verður unglingastigið með félagsvist í­ Lundi. Við minnum á félagsvistina sem unglingastigið verður með í­ Lundi á morgun kl 19:30. Eigum skemmtilega kvöldstund með ungmennunum okkar og styrkjum um leið ferðasjóð nemenda. Aðgangseyrir er kr 1.500 - kaffi og meðlæti er innifalið.

Dagur táknmálsins

Í dag 11. febrúar er árlegur dagur í­slenska táknmálsins. Mennta- og menningarrnálaráðuneytið hvetur skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að huga að því­ að nota 11. febrúar, eða dagana þar í­ kring, til að kynna í­slenskt táknmál sérstaklega. Íslenskt táknmál er eina hefðbundna minnihlutamálið hér á landi og er fyrsta mál um 200 slendinga. Enn fleiri nýta sér í­slenskt táknmál í­ daglegu lí­fi og starfi. Öxarfjarðarskóli hafði daginn í­ heiðri og minnti nemendur á þetta mikilvæga mál. Á myndinni sjást nemendur og starfsfólk klappa fyrir nemendum, á táknmáli, eftir að þeir höfðu kynnt nokkur hugtök á táknmáli.

Yngsta stig Öxarfjarðarskóla og kí­nversk menning

Það hefur verið kí­nverskur blær á heimastofu yngsta stigs og miðrými í­ Öxarfjarðarskóla í­ tilefni kí­nverskra áramóta 5. febrúar. Í heimastofu og miðrými hanga uppi kí­nversk listaverk og kí­nverskar skreytingar. Yngsta stigið hefur, á undanförnum dögum, verið að kynna sér Kí­na og kí­nverska menningu undir handleiðslu Jennyar og Vigdí­sar. Nemendur bjuggu til listaverk og skreytingar, spiluðu kí­nversk spil, dönsuðu kí­nverskan dans með tilheyrandi borðum, sem þeir sýndu okkur hinum. Einnig fengu nemendur að spreyta sig á því­ að borða með prjónum. Stórskemmtilegt að fá að fylgjast með þessu verkefni.

Dagur leikskólans í­ gær, miðvikudaginn 6. febrúar, og upplýsingar frá Menntamálastofnun í­ tilefni dagsins.

Kæru foreldrar, forráðamenn og starfsfólk. Um leið og Menntamálstofnun óskar okkur öllum til hamingju með dag leikskólans, sem var í­ gær miðvikudaginn 6. febrúar. Sendir hún frá sér eftirfarandi upplýsingar: Menntamálastofnun vinnur að eflingu læsis í­ landinu í­ tengslum við þjóðarsáttmála um læsi. Þar spila leikskólar stórt hlutverk því­ þar er lagður mikilvægur grunnur að læsi. Málþroskinn vegur þar þyngst og er eitt mikilvægasta verkfærið. Í tilefni af degi leikskólans gefur Menntamálastofnun út tvö myndbönd,Orðaforði og Læsisráð https://mms.is/myndbond , sem innihalda viðtöl við fagfólk og foreldra um mikilvægi þess að efla orðaforða og málþroska barna. Myndböndin nýtast bæði starfsfólki leikskóla svo og foreldrum og öðrum sem eiga í­ samvistum við börn. Þá gefur Menntamálastofnun út í­ formi talglæra, góð ráð um hvernig hægt er að nýta lestur á árangursrí­kan hátt. Menntamálastofnun bindur vonir við að bæði myndböndin og talglærurnar nýtist starfsfólki leikskóla og þeir deili þeim áfram til foreldra svo allir geti lagt sitt af mörkum til að efla málþroska og grunnþætti læsis hjá sí­num börnum.

Unglingastig Öxarfjarðarskóla á ferðinni og kynnir sér atvinnulí­f og skóla

Það er erilsamt hjá unglingastiginu okkar þessa dagana. Í dag er unglingastigið okkar á ferðinni og kynnir sér atvinnulí­f og skóla á Akureyri. Hér eru áætlaðar tí­masetningar, sem mögulega eitthvað riðlast en undirrituð heyrði frá þeim kl 16:00 og þau voru að leggja af stað frá Akureyri og hafði gengið vel hjá þeim. 8:20 Morgunmatur í­ Lundi 8:40 Brottför úr Lundi 11:00 Starfamessa í­ HA 11:50 Kynningarferð í­ MA 13:00 Kynningarferð í­ VMA 14:00 Kynning á heimavistinni (óljós tí­masetning, förum beint á vistina eftir VMA) 14:30 Matur, pí­tsa á Sprettinum (gæti riðlast eitthvað, fer eftir hvenær heimsóknin á vistina er búin.) Heimferð yrði svo strax að loknum matnum. Hópurinn gæti verið kominn í­ Lund upp úr 18:00. Nemendum er skilað við á afleggjara á leiðinni og á Kópasker. Rúnar á Hóli keyrir Lundur-Akureyri-Lundur.